Vers Inni í skógi hugsana leita ég að þér Reyni að fylgja eftir þér, kannski varstu aldrei hér Af hverju er ég alltaf að leita að þér Af hverju er ég alltaf að leita að þér
Viðlag Ég hef enga vængi trúðu mér, bara hugarflugið Sem dregur mig nú nálægt þér, lokka, lokkandi Ég hef enga vængi trúðu mér, bara hugarflugið Sem dregur mig nú nálægt þér, lokka, lokkandi Lokka, lokkandi Lokka, lokkandi
Vers Mig langar að fljóta í sykurhúðuðum draum Gleym loksins hver ég er, ég þekki enga hér Þannig vil ég hafa það, hafa það Þannig vil ég hafa það, hafa það
Ég týndi sjálfri mér Ég týndi
Viðlag Ég hef enga vængi trúðu mér, bara hugarflugið Sem dregur mig nú nálægt þér, lokka, lokkandi Ég hef enga vængi trúðu mér, bara hugarflugið Sem dregur mig nú nálægt þér, lokka, lokkandi Lokka, lokkandi Lokka, lokkandi
Ég veit ekki alveg hvað gerðist, en ég fékk hálfgert tónlistaræði. Allt í einu fór ég að vakna klukkan sex á morgnana, stundum fimm, til að vinna í tónlist áður en ég færi í vinnuna. Ekki vegna þess að ég hefði sett mér einhver sérstök markmið, heldur einfaldlega vegna þess að mig langaði miklu meira að vera að búa til tónlist en að sofa.
Hugmyndirnar komu hver á eftir annarri og áður en ég vissi af var ég farinn að vinna að heilli plötu. Ég hafði ekkert sérstakt plan og vissi ekkert endilega hvert þetta stefndi. Ég reyndi bara að fylgja því sem mér fannst spennandi hverju sinni.
Útkoman er ellefu lög sem eru stundum gróf, stundum falleg, oft bassamikil og svolítið út um allt. Ég hef reynt að halda í það sem gerði mig spenntan þegar ég byrjaði, leyfa hlutunum að vera svolítið skrítnum og ekki slípa alla kanta af.
Ég hef fengið frábært fólk með mér í þetta. Kaktus hefur verið sérstaklega mikilvægur í ferlinu, hjálpað mér með sönginn, söngupptökur og alls konar annað sem hefur skipt miklu máli. Óttarr Proppé, Elíza Newman, Arnar úr Úlfi Úlfi og Jónas Sig hafa líka komið að plötunni og sett sinn svip á tónlistina.
Platan er ellefu lög, rúmar 44 mínútur og afrakstur óvenjulega margra snemmorgna.
Hún kemur út 12. febrúar 2027, fyrst stafrænt og svo á vínyl.
Ég veit ekki alveg af hverju þetta byrjaði bara allt í einu, en ég er þakklátur fyrir það.
Spurt og svarað
Hún elskar skakkar tennur er væntanleg ellefu laga plata frá gjemund’ bje frá samnefndu tónlistarverkefni. Platan sameinar hráa, bassamikla raftónlist, söng og ólíkar áferðir. Hér eru svör við helstu spurningum um tónlistina, samstarfsfólkið og útgáfuna.
Hvað er Hún elskar skakkar tennur?
Hún elskar skakkar tennur er plötuverkefni gjemund’ bje. Platan hefur verið í vinnslu frá sumrinu 2025 og inniheldur ellefu lög. Hún er hugsuð sem ein heild, með kraftmiklum, bassamiklum köflum, rólegri augnablikum og millispilum.
Hver er gjemund’ bje?
gjemund’ bje er tónlistarverkefni frá Reykjavík. Undir því nafni eru lögin samin og útsett, í samstarfi við tónlistarfólk sem hefur sett ólíkan svip á plötuna. Meira verður sagt frá manneskjunni á bak við nafnið þegar platan kemur út.
Hvernig tónlist er á plötunni?
Hljóðheimurinn er rafrænn, hrár og bassamikill, með söng, ríkulegum áferðum og stórum hljómi. Tónlistin er stundum gróf og villt, stundum rólegri og viðkvæmari. Áherslan er á karakter og kraft, þar sem óvæntar hugmyndir og óslípaðir kantar fá að halda sér. Öll lögin eru á íslensku.
Hvernig byrjaði plötuverkefnið?
Verkefnið byrjaði sumarið 2025 þegar gjemund’ bje fékk, að eigin sögn, hálfgert tónlistaræði. Hann fór að vakna klukkan sex á morgnana, stundum fimm, til að vinna í tónlist áður en hann færi í vinnuna. Hugmyndunum fjölgaði og smám saman varð til heil plata.
Var ákveðið frá upphafi að gera heila plötu?
Nei, verkefnið byrjaði á hugmyndum og tilraunum sem undu upp á sig. Löngunin til að búa til tónlist kom fyrst og platan tók smám saman á sig mynd. Snemmmorgnarnir urðu þannig að ellefu lögum og rúmum 44 mínútum af tónlist.
Hvað eru mörg lög á plötunni og hvað er hún löng?
Á plötunni eru ellefu lög. Miðað við núverandi útgáfu er heildarlengdin 44 mínútur og 3 sekúndur. Fyrirhuguð skipting á vínyl er fimm lög á A-hlið og sex á B-hlið.
Já, Hún elskar skakkar tennur er bæði heiti plötunnar og fjórða lagsins á henni.
Er platan hugsuð til að hlusta á frá upphafi til enda?
Já, platan er hugsuð sem heild. Röð laganna, millispilin og breytingarnar í krafti og stemningu eru hluti af upplifuninni. Það má auðvitað velja sér einstök lög, en hlustun frá upphafi til enda gefur samhengi sem fæst síður með lögunum stökum.
Hverjir koma að plötunni?
Meðal þeirra sem hafa komið að verkefninu eru Kaktus Einarsson, Óttarr Proppé, Elíza Newman, Arnar úr Úlfi Úlfi og Jónas Sigurðsson. Þátttaka þeirra hefur mótað tónlistina á ólíkan hátt.
Elíza Newman syngur í Sykurhúðuðum draumi, Arnar Úlfur rappar í Breika núna og Óttarr Proppé syngur í Passaporta mi amor og Postludium. Arndís Thorarensen syngur bakraddir í Dýpri og í Ef ég væri fullkominn ásamt Fríðu Lúnu Guðmundsdóttur, Marteinn Lúðvík Guðmundsson leikur á gítar í Lifir Keflavík og Ungleikarar Borgarleikhússins 2025 heyrast í 909 & eymd – millispili.
Hvert er hlutverk Kaktusar Einarssonar?
Kaktus Einarsson hefur verið mikilvægur samstarfsmaður í vinnunni við plötuna. Hann hefur hjálpað gjemund’ bje með sönginn, upptökur á söng og ýmislegt annað í ferlinu. Aðkoma hans nær því lengra en að einstöku gestaframlagi.
Hver samdi lögin og textana?
gjemund’ bje samdi og útsetti öll lögin og samdi flesta textana. Elíza Newman samdi textann í Sykurhúðuðum draumi, Arnar Úlfur samdi textann í Breika núna og Óttarr Proppé samdi textann í Passaporta mi amor og Postludium. Ljóðin í Ef ég væri fullkominn og Lokatilraun eru úr ljóðaljóðunum.
Hvenær kemur platan út?
Stefnt er að stafrænni útgáfu Hún elskar skakkar tennur þann 12. febrúar 2027. Vínylútgáfan er einnig í undirbúningi, en afhendingardagur hennar verður staðfestur sérstaklega.
Kemur platan út á vínyl?
Já, unnið er að vínylútgáfu samhliða stafrænu útgáfunni. Stefnt er að hvítum vínyl. Endanlegar upplýsingar um upplag, verð, sölustaði og afhendingu verða staðfestar þegar framleiðsluáætlunin liggur fyrir.
Verður vínyllinn fáanlegur sama dag og stafræna útgáfan?
Það er ekki staðfest. Vínylframleiðslan hefur sína eigin tímalínu og ekki er hægt að lofa afhendingu 12. febrúar 2027 að svo stöddu. Tilkynnt verður sérstaklega hvenær vínylplatan verður fáanleg.
Verður haldið útgáfupartý?
Stefnt er að útgáfupartýi þar sem vínylplatan verður til sölu. Dagsetning og staðsetning verða kynnt þegar afhending vínylsins liggur fyrir. Útgáfupartýið gæti því orðið á öðrum degi en stafræna útgáfan.
Verða bolir eða annar varningur tengdur plötunni?
Unnið er að bolum tengdum plötunni og myndmáli hennar. Upplýsingar um endanlega útfærslu, stærðir, verð og sölu verða kynntar þegar þær liggja fyrir.
Hvar verður hægt að hlusta á plötuna og kaupa vínyl?
Stefnt er að stafrænni útgáfu á streymisveitum og sölu á vínyl. Staðfestir hlustunar- og sölutenglar verða birtir á þessari síðu þegar þeir eru tilbúnir. Þangað til er hægt að hlusta á 30 sekúndna brot úr hverju lagi hér á síðunni.
Get ég lesið textana við lögin?
Já. Smelltu á lag á síðunni til að opna textann og upplýsingar um hverjir komu að laginu. Hvert lag er líka með sína eigin síðu.
Af hverju er hvert lag sýnt sem gamalt tæki?
Hvert lag fær sitt eigið hljómflutningstæki, til dæmis kassettu, vínylplötu, MiniDisc, ghettoblaster, plötuspilara, vasadiskó, trommuheila og Winamp. Tækin eru óður til allra leiðanna sem tónlist hefur ratað í eyrun á okkur, og þau spila brot úr laginu þegar ýtt er á þau.
Þakkarlisti
Kaktus, takk fyrir sálrænan stuðning við míkrafóninn, góð ráð fyrir nóturnar, að vera næs og fyrir alla hjálpina
Óttarr, takk fyrir að taka sénsinn á lagi eftir mann sem þú þekktir ekkert
Elíza, takk aftur fyrir að lána þína fallegu rödd í enn eitt ruglið með mér
Arnar, mig hefur lengi dreymt um að gera lag með frægum rappara, fáránlega lengi. Þetta er ekkert eðlilega töff og gaman - takk!
Jónas, vinur minn - takk fyrir tímann, samtölin, ráðin og innblásturinn